Arctic Protein
Arctic Protein sérhæfir sig í að þjónusta laxeldisfyrirtæki, útgerðir og fiskframleiðendur með því að taka við því hráefni sem ekki er nýtt til manneldis. Starfsemin okkar styður við markmið um sjálfbærni og endurnýtingu allra hráefna. Með endurnýtingu aukaafurða sem falla til við vinnslu á fiskafurðum drögum við úr úrgangsmyndun og viðhöldum verðmætum auðlinda í samræmi við hringrásarhagkerfið. Með okkar þjónustu gerum við okkur sem og samstarfsaðila okkar að sjálfbærum og umhverfisvænum fyrirtækjum.
Víðir Örn Guðmundsson
Ráðgjafi